Ferðaþjónustan  spár og greiningar


Fréttir okkar tengjast oftast fjölda ferðamanna og greiningum og spám þar að lútandi enda hefur fyrirtækið lengi verið viðloðandi ferðaþjónustu og gert margar rannsóknir og greiningar á því sviði. 
13. janúar 2025

Rúm 2% fjölgun ferðamanna á árinu - og 5% í desember
Fjöldi ferðamanna um Leifsstöð í desember var um 142.500 sem er aukning um 5% milli ára. Fjölmennastir voru Bandaríkjamenn svo Bretar þar á eftir Ítalir. Í fjórða sæti voru Þjóðverjar.

Fjöldi ferðamanna árið 2024  
Heildarbrottfarir erlendra ferðamanna frá landinu um Leifsstöð voru um 2,26 milljónir, sem var aukning um 47 þúsund frá 2023 eða 2,1%. Þetta er mesti fjöldi frá upphafi að undanskildu metárinu 2018 - rúmlega 2,3 milljónir. Bandaríkjamenn voru um 27,4% allra brottfara árið 2024 og Bretar 11,8%. Næst komu Þjóðverjar svo Pólverjar og þar næst Ítalir svo Kínverjar.

Við rýnum síðar betur í þessar tölur síðar og spáum fyrir árið 2025. Hafa ber í huga að þessar tölur ná ekki yfir Norrænu, skemmtiferðaskip og - aðra flugvelli sem er hverfandi.

 

11. desember 2024

Um 8,5% fjölgun ferðamanna í nóvember  og 2% á árinu
Fjöldi ferðamanna um Leifsstöð var um 160 þúsund. Fjölmennastir voru að venju Bandaríkjamenn rúm 23%, svo Bretar rúm 21% þar á eftir Ítalir 5%. Í fjórða sæti voru Þjóðverjar 4.8%, svo Frakkar 3.7% og í sjötta sæti Kínverjar 3.6%.

Fjöldinn frá áramótum er nú nærri 2.1 milljónir, sem er tæplega 2% aukning á milli ára. Það má því gera ráð fyrir að heildarfjöldi verði svipaður og í fyrra eða rúmlega það.  Tíðni flugferða til og frá viðkomandi landi er stærsta áhrifabreytan varðandi fjölda ferðamanna, sem m.a. skýrir Bandaríkjamenn nær alltaf fjölmennasta. Ítalir stökkva nú í þriðja sætið enda flug t.d. með Wizzair frá t.d. Milano og Róm vinsæl.

Heimildir: Ferðamálastofa, Isavia, NETIÐ, Internetið, Ísb.

10. sept 2024
281 þúsund brottfarir ferðamanna í ágúst
Það er svipaður fjöldi og í fyrra. Langfjölmennastir voru Bandaríkjamenn um 30%, Þjóðverjar rúm 8% og Ítalir 7,7%. Þá í fjórða sæti Frakkar 5,8%, svo Kanadamenn 4,6%.

Fjöldi frá áramótum er 1,5 milljónir, sem er 0,8% aukning milli ára. En gistinóttum fækkaði um 5,3% á landinu í júlí (ekki komnar tölur f. ágúst) á sama tíma og ferðamönnum fjölgaði um 0,5%. Gistinóttum á árinu hefur almennt verið að fækka, sem þýðir að ferðamenn eru að dvelja styttra en áður. Endurskoðaðar spár um fjölda ferðamanna reikna með u.þ.b. 2,250 milljónum ferðamanna 2024.

8. júní 2024
155 þúsund brottfarir ferðamanna í maí
Fækkun milli ára nemur -2,3%. Fjölmennastir voru Bandaríkjamenn rúm 27% svo Þjóðverjar 7,6% og Pólverjar 7,4% (mikið vinnuafl). Þá í fjórða sæti Bretar 6,1%, Hollendingar 4,8% og Ítalir 4,6%.  Fjöldi frá áramótum er núna 748 þúsund sem er 3,9% fjölgun milli ára. Það vantar stundum í umræðuna að það er ákveðin þróun í heiminum að fólk fer í styttri og tíðari ferðir.   

 

8. mars 2024
156 þúsund brottfarir í febrúar 2024
Einungis einu sinni hefur fjöldi verið meiri eða í febrúar 2018. Lang fjölmennastir voru Bretar rúm 30%, Bandaríkjamenn 16,5% svo Kínverjar 7,4%. Þar næst Hollendingar 5% og svo Þjóðverjar 4.3%.   

Spár vegna 2024
Spár flestra aðila hljóða uppá um 2,4 milljónir eða um 8% aukningu frá síðasta ári.